Gallar, greiningar og gagnaskráning

Nú er sauðburður víðast hvar kominn í gang og fátt skemmtilegra en að taka á móti lömbunum þegar vel gengur. En stundum koma fram einhverjir gallar. Sumt getur verið eitthvað tilfallandi sem veldur því að lambið fæðist ekki eðlilega þroskað, hugsanlega tengt fóðrun eða öðrum umhverfisþáttum. En stundum er um að ræða galla sem erfast. Eins er með ærnar, það eru ýmsir gallar sem geta komið fram hjá ánum sem dregur úr endingu þeirra. Upplýsingar um allt slíkt er gagnlegt að halda til haga.

Vansköpuð lömb
Ef bændur hafa grun um að lamb sem fæðist sé vanskapað sökum erfðagalla er æskilegt að tilkynna það. Sérstaklega ef lambið tengist náið sæðingastöðvahrútunum. Gott er að fá senda mynd, númer foreldra og lýsingu á gallanum. Þessar upplýsingar má senda á ee@rml.is (Eyþór Einarsson).

Hægt að láta greina bógkreppu og riðuarfgerð úr sama sýni
Líkt og kynnt var í frétt hér á vefnum þann 20. mars er hægt að láta greina bæði riðuarfgerð og bógkreppu í sama sýninu, en sami búnaður er notaður til að taka sýni fyrir hvorutveggja. Eingöngu bógkreppugreining kostar 3.000 kr. + vsk. en 4.300 kr. + vsk. ef greina á hvorutveggja. Mjög mikilvægt er að sýni sem fara í bógkreppugreiningu séu höfð sér í poka og kyrfilega merkt og ef sama sýnið á bæði að fara í riðuarfgerðargreiningu og bógkreppu að þá séu slík sýni einnig höfð sér í poka og vel merkt. Ekki dugar að skrifa í reiti sýnablaðsins slíkar upplýsingar. Muna þarf að skrá bógkreppugreiningar inn í Fjárvís undir „forskráning á öðrum arfgerðargreiningum“.

Skrá galla í Fjárvís
Ef lamb fæðist vanskapað þarf að skrá það í Fjárvís. Það er gert með því að skrá atburð á lambið. Einnig er mikilvægt að skrá atburði á ærnar, sérstaklega þegar það tengist göllum sem geta stjórnast af erfðum, a.m.k. að hluta til. Þær upplýsingar eru nauðsynlegar m.a. til að skoða þróun tíðni mismunandi galla í stofninum og tengsl við ættir. Þetta getur t.d. verið júgurbólga, kviðrif, leg gengur út, skeiðar sig, lélegir fætur og bóglos. Eins ef þarf að fella á t.d. sökum framangreindra galla að endilega skrá þá hver förgunarástæðan er.

/okg