Síðustu tvö haust hafa hrútar sem farið hafa á sæðingastöð verið prófaðir fyrir bógkreppu með erfðaprófi sem verið hefur í þróun síðustu ár. Prófið er enn sem komið er framkvæmt í Nýja-Sjálandi og því hefur ekki verið raunhæft að prófa alla hrúta áður en þeir koma inn á sæðingastöð vegna þröngs tímaramma.
Af þeim hrútum sem voru á sæðingastöðvunum síðasta vetur var búið að prófa fyrir fengitíma nánast alla hrúta sem voru að hefja sinn annan eða þriðja vetur á stöð og megnið af nýju hrútunum en þeir hrútar sem valdir voru á lokametrunum náðist ekki að greina fyrir fengitíma. Því miður kom í ljós í vetur að einn hrúturinn gæti verið arfberi bógkreppu. Tekið var úr honum annað sýni til prófunar og liggur það nú fyrir að Glampi 24-943 frá Hafrafellstungu er talin líklegur til að vera arfblendinn fyrir bógkreppu samkvæmt DNA greiningu. Enginn tilkynning hefur þó borist um að fæðst hafi vanskapað lamb undan Glampa í vor og því í raun ekki hægt að fullyrða að hann gefi bógkreppu fyrr en slíkt sannast á hann. Erfðaprófið er svokallað setraðapróf sem segir til um með allgóðri vissu hvort gripur sé líklegur til að vera arfberi en er þó ekki 100% öruggt enn sem komið er. Hins vegar verður að ráðleggja bændum að fara mjög varlega í að framrækta Glampa. Vonandi styttist í að hægt verði að bjóða upp á þjónustgreiningar vegna bógkreppu en nánari fréttir verða fluttar af því síðar.
Aðrir hrútar sem voru á stöðvunum í vetur eru ekki líklegir til að vera arfberar bógkreppu samkvæmt erfðaprófinu en þó eru tveir hrútar sem greining skilað engri niðurstöðu og eru því enn ógreindir, en það er Toppur 24-974 og Kátur 20-905.
Nokkrar tilkynningar bárust frá bændum í vor um lömb sem eitthvað þótti athugavert við eða voru greinilega vansköpuð. Nokkur af þeim voru undan sæðingahrútum en ekki er hægt að staðfesta að neitt af því sé bógkreppa. Tilkynningar komu um örfá bógkreppulömb þar sem telja má fullvíst út frá einkennum og ættum að um bógkreppu sé að ræða en góðu heilli virðist fátítt að slík lömb fæðist. Hinsvegar er áfram dýrmætt að fá sýni úr slíkum lömbum til að nota við áframhaldandi þróun á prófinu og eins til að fá betri vitneskju um útbreiðslu gallans.
Á meðfylgjandi mynd er Glampi 24-943.
/okg