Gleðilegt sumar!

Í dag er sumardagurinn fyrsti, vor í lofti og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins óskar ykkur gleðilegs sumars. Harpa er fyrsti mánuður sumars samkvæmt gamla norræna tímatalinu og hefst á næsta fimmtudegi eftir 18. apríl. Við höldum fyrsta dag Hörpu hátíðlegan sem sumardaginn fyrsta. 

Vonandi mun sumarið verða gjöfult og gott þó ekki hafi að þessu sinni frosið saman sumar og vetur.

/gj