Góður gangur í DNA sýnatökum samhliða sauðburði

Það sem af er ári er búið að afgreiða um 67.000 hylki til bænda vegna DNA sýnatöku, sem er aðalega vegna arfgerðargreiningar á riðumótstöðu. Útlit er fyrir að þátttaka í greiningum verði heldur meiri í ár en á síðasta ári en það er fagnaðarefni sá mikli kraftur sem er í bændum í þessu verkefni.

Megnið af hylkjunum fóru út í lok apríl og byrjun maí og því miður er lagerinn tómur eins og er. Von er á nýrri sendingu sem leggur af stað frá Þýskalandi í þessari viku en verður því ekki klár til afgreiðslu fyrr en eftir næstu helgi. Nokkrar pantanir hafa komið inn núna allra síðustu daga og verður því ekki hægt að afgreiða þær fyrr en kemur fram í næstu viku, en reynt verður að vinna það eins hratt og vel og hægt er þegar nýja sendingin berst.

/okg