Samhliða samningum RML við MATÍS um framkvæmd riðuarfgerðargreininga bjóðast nú betri kjör á öðrum arfgerðargreiningum sem greind eru á vegum RML hjá MATÍS vegna samlegðaráhrifa. Byggist hagstætt verð á „öðrum arfgerðargreiningum“ m.a. á því að sýnum sé safnað upp og greind á nokkra mánaða fresti, en kostnaðarsamt er að greina aðeins örfá sýni í senn. Þannig er gert ráð fyrir að sýni vegna annarra arfgerðagreininga en vegna riðu mótstöðu sem komið hafa inn í vetur verði greind seinnipartinn í apríl. Sýni sem eiga að ná inn í þessa greiningu þurfa því að berast fyrir 15. apríl til RML.
Sú nýjung verður nú í boði að í stað þess að bjóða upp á greiningu á Þokugeni eða Lóugeni verður í boði ein frjósemisgreining sem gefur upplýsingar um báða þessa breytileika og koma niðurstöður þá bæði fyrir Þoku og Lóu.
Eftirfarandi greiningarflokkar verða í boði (öll verð án vsk.):
- Eingöngu riðuarfgerðargreining 1.750 kr. (líkt og áður hefur verið kynnt)
- Riðuarfgerðargreining + bógkreppugreining: 4.300 kr.
- Riðuarfgerðargreining + frjósemisgreining: 4.300 kr.
- Bógkreppugreining: 3.000 kr.
- Frjósemisgreining: 3.000 kr.
Þar sem greining á gulri fitu er framkvæmd með öðrum hætti þá nást ekki samlegðaráhrif af riðuarfgerðargreiningum sem nýtast til að minnka kostnað við greiningu á gulri fitu. Greining á gulri fitu kostar 8.000 kr. án vsk.
Öll sýni skulu send inn til RML, annaðhvort á Hvanneyri eða starfstöð RML á Höfðabakkanum í Reykjavík. Mikilvægt er að sýni sem eiga að fara í aðra greiningu en eingöngu riðu séu höfð sér í poka og það vandlega merkt í hvaða greiningu þau eiga að fara, ásamt upplýsingum um grip og greiðanda fyrir sýnið. Ef þetta er ekki aðskilið fara öll sýni í riðuarfgerðargreiningu. Þetta eru því 5 flokkar sem eru í boði og sýni í hverjum flokki þurfa að vera sér.
Skýrt skal tekið fram að hér er ekki verið að bjóða upp á viðbótargreiningu á DNA úr áður greindum sýnum. Ef ætlunin er að fá bógkreppugreiningu eða frjósemisgreiningu úr sýni sem einnig á að fara í riðuarfgerðargreiningu (greiningar flokkur 2 og 3) þarf það að liggja fyrir þegar sýnið er sent inn. Ef stendur til að bíða eftir niðurstöðu fyrir riðuarfgerð áður en ákveðið er hvort eigi að skoða meira í sama einstakling, þarf að senda inn nýtt sýni.
Sýni sem fara í aðrar greiningar en riðuarfgerðargreiningu þarf að forskrá í Fjárvís undir „aðrar arfgerðargreiningar“. Þannig getur þurft að forskrá sama sýnanúmerið tvisvar á mismunandi stað í Fjárvís ef gripur er bæði að fara í riðuarfgerðargreiningu og einhverja aðra greiningu.
Greiningar vegna „annarra arfgerðargreininga“ (á við um flokka 2 til 5) fara að lágmarki fram í apríl, ágúst og okóber og þurfa sýni því að vera komin í síðasta lagi fyrir 15. dag í viðkomandi mánuði til að ná inn í greiningu þess mánaðar. Best er hinsvegar að þau berist fyrr, því þegar nægilegt magn er komið inn af sýnum í viðkomandi greiningu yrði framkvæmd greining.
Hægt er að fá flýtimeðferð (t.d. ef óskað er eftir bógkreppu greiningu í desember og ekki vilji til að bíða fram í apríl). Kostar þá bógkreppugreining og frjósemisgreining hvor um sig 7.300 kr. pr. sýni.
Líkt og verið hefur, þá verða niðurstöður keyrðar inn í Fjárvís og þar eru þær í raun afhentar bóndanum. Forskráning sýnanna er því nauðsynleg til þess að niðurstöður berist.
/hh