Gríptu boltann

Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins standa í ágústmánuði fyrir fundaherferð með það markmið að hvetja til nýsköpunar í sveitum.

Aðalfyrirlesari fundanna er Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta og mun hann flytja erindi sem ber nafnið "Leiðin til sigurs". Erindið fjallar um árangursríka markmiðssetningu og hvað þarf til að ná framúrskarandi árangri. Fjallað er um uppbyggingu liðsheildar, samskipti og innleiðingu breytinga.

Að auki verða fengnir til leiks reynsluboltar í sölu vöru og þjónustu beint frá býli, sem munu miðla af reynslu sinni varðandi þróun og markaðssetningu.

Þá verður erindi frá ráðunautum RML varðandi ýmsa sjóði sem hægt er að sækja styrki í, ásamt því hvernig umsóknarferlið fer fram.

  • 22. ágúst kl 20:00 Húnavatnssýslur – félagsheimilið Víðihlíð
  • 23. ágúst kl 13:00 Strandasýsla – Sauðfjársetrið á Ströndum
  • 24. ágúst kl 13:00 Dalasýsla – Dalabúð
  • 28. ágúst kl 13:00 Skagafjarðarsýsla – félagsheimilið Hofsósi

Fundirnir verða öllum opnir og eru sem flestir hvattir til að mæta.

só/okg