Gunnar Ríkharðsson kominn til starfa

Gunnar Ríkharðsson hóf störf hjá RML í september. Hann mun starfa í faghópi nautgriparæktar og sinna fóðurráðgjöf. Fram að áramótum verður Gunnar með starfsaðstöðu á Blönduósi og í 50% starfshlutfalli. Eftir áramót verður hann með starfsaðstðu á Selfossi og í 100% starfi þar. Hægt er að ná í Gunnar í síma 8954365 eða í gegnum netfangið gr@rml.is.

Á starfsstöð RML á Blönduósi starfa auk Gunnars:

Anna Margrét Jónsdóttir - ráðunautur,
Þórður Pálsson - í faghópi nautgriparæktar.

/okg