Hefur þú áhuga á að vinna við sauðfjárdóma?

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins leitar að fólki sem hefur áhuga á að vinna við sauðfjárdóma haustið 2026.

Almennt er gerð sú krafa að sauðfjárdómarar hafi lokið námi í búvísindum og lokið námskeiði í sauðfjárdómum. Til greina kemur að gera undantekningu frá þessum kröfum ef viðkomandi hefur starfsreynslu sem sauðfjárdómari. Tímabilið sem um ræðir er september og október. 

Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2026.

Áhugasömum er bent á að hægt er að kynna sér starfsemi fyrirtækisins á heimasíðu RML. Eyðublað fyrir umsókn um starf er að finna í gegnum tengil hér neðar. 

Nánari upplýsingar veittar í gegnum netfang Eyþórs Einarssonar, ee@rml.is. 

Sjá nánar: 
Sækja um starf hjá RML

/okg