Hefur þú áhuga á að vinna við sauðfjárdóma?

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins leitar að fólki sem hefur áhuga á að vinna við sauðfjárdóma haustið 2026.

Almennt er gerð sú krafa að sauðfjárdómarar hafi lokið námi í búvísindum og lokið námskeiði í sauðfjárdómum.
Til greina kemur að gera undantekningu frá þessum kröfum ef viðkomandi hefur starfsreynslu sem sauðfjárdómari.
Tímabilið sem um ræðir er september og október. Landsvæði sem sérstakleg er horft til er Suðurland, Austurland og N-Austurland.

Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2026.

Við bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is undir mannauður þar sem sótt er um starf og merkt sauðfjárdómar 2026.
Eyðublað fyrir umsókn um starf er að finna í gegnum tengil hér neðar. 

Nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfang Eyþórs Einarssonar,  ee@rml.is 

Sjá nánar: 
Sækja um starf hjá RML

/hh