Nú er farið að líða að sumarlokum og RML er búið að opna fyrir pantanir á hey- og jarðvegsýnatöku haustsins.
Efnainnihald heyja ræðst að mestu af áburðarefnum, veðurfari og sláttutíma og getur því verið breytilegt milli ára og svæða. Veðurfar sumarsins hefur verið nokkuð breytilegt milli landshluta, þar sem víða hefur verið nokkuð kalt og vætusamt á sunnan- og vestanverðu landinu en hlýrra og þurrara norðan- og austanlands. Því má búast við að gæði og efnainnihald heyja séu breytileg milli landshluta, sérstaklega þegar horft er til seinni sláttar. Til að vera vel upplýstur um stöðu fóðurs og jarðvegsins sem bændur eru með í höndunum og hvernig best er að nýta niðurstöðurnar til að hámarka uppskeru og nýtingu hennar er mikilvægt að taka reglulega sýni.
Heysýni gefa okkur yfirlit yfir efnainnihald og gæði heyja ársins og nýtast bæði í fóður- og áburðaráætlunargerð. Best er að taka nokkur sýni úr ólíkum spildum til að fá niðurstöður sem endurspegla heyforða vetrarins. Einnig er hægt að taka safnsýni af spildum sem eru í svipaðri ræktun og með svipaðan sláttutíma til að fá upplýsingar sem endurspegla stærri hluta fóðursins. Mikilvægt er að hafa í huga að ef tekið er verkað heysýni þá þarf gróffóðrið að vera búið að verkast í 4-6 vikur áður en sýnið er tekið.
Jarðvegssýni veita mikilvægar upplýsingar um sýrustig jarðvegs og birgðir hans af mikilvægustu plöntunæringarefnunum. Með því að taka jarðvegssýni úr sömu spildum á nokkurra ára fresti er hægt að fylgjast með breytingum á sýrustigi og næringarefnastöðu jarðvegsins milli ára og hvort ástæða sé til að breyta áburðargjöf eða kalka spilduna.
Ef stefnt er á endurræktun gefa jarðvegssýni mikilvægar upplýsingar um hvaða gróðri jarðvegurinn hentar og til hvaða aðgerða er hægt að grípa til að reyna að auka lifun sáðgresis í jarðveginum. Niðurstöður jarðvegssýna frá undanförnum árum benda til þess að sýrustig túna sé mjög víða lægra en þau viðmiðunargildi sem æskileg þykja í jarðrækt og því mikilvægt að vera með þær upplýsingar við hendina ef það á að fara í endurræktun. Æskilegt er að taka jarðvegssýni áður en búfjáráburður er borinn á og áður en jörð fer að frjósa.
Hægt er að panta hey- og jarðvegssýnatöku á heimasíðu RML eða hafa samband í gegnum síma. Við hvetjum bændur til að panta tímanlega til að hægt sé að skipuleggja sýnatökudagana. Ef vakna einhverjar spurningar er um að gera að hafa samband við RML í síma 516-5000 fyrir nánari upplýsingar.
Sjá nánar hér fyrir sýnatökupatanir:
Panta hey-/jarðvegssýnatöku
/hh