Heysýnataka 2022

Heyefnagreiningar gefa mikilvægar upplýsingar sem nýtast í bústjórninni m.a. við að taka ákvarðanir varðandi skipulag fóðrunar en einnig til að meta hvernig tekist hefur til við áburðargjöf. Árferði hefur áhrif á efnainnihald fóðurs og því ekki hægt að búast við að niðurstöður fyrra árs eða ára segi til um niðurstöðu líðandi árs. Því er mikilvægt að taka árlega heysýni úr a.m.k. mikilvægustu fóðurgerðunum.

Annað sem hvetur enn frekar til heysýnatöku í ár er mikil hækkun á verði tilbúins áburðar á þessu ári. Af þeim sökum má ætla að áburðargjöf hafi sum staðar verið með öðrum hætti en undanfarin ár. Sumstaðar getur verið óvissa um það hve góð nýting búfjáráburðar hefur verið en áborið magn af honum og nýting hans hefur einnig áhrif á framboð nærinarefna og upptekið magn þeirra og þar með á efnainnihald fóðursins.

Mikilvægt er samhliða heyskap að skipuleggja heysýnatökuna þannig að rúllur sem ætlunin er að taka sýni úr séu aðgengilegar í stæðunni eða teknar frá og hafðar sér. Rúllur sem sýni eru tekin úr þurfa að endurspegla þá heytegund sem þær standa fyrir og gott er að taka það mörg sýni að þau gefi góða mynd af heyforðanum sem gefa á í vetur og breytileika hans. Miða má við að taka safnsýni úr túnum í svipaðri ræktun og sláttutíma. Ef ræktað er grænfóður í einhverjum mæli er gott að taka sýni úr því og einnig hánni því hún er ólík heyjum úr fyrri slætti.

Að vanda býður RML upp á heysýnatöku og er hægt að panta heysýnatöku og fóðurráðgjöf á heimasíðu RML (hnappur á forsíðu).

Ef bændur kjósa að taka sjálfir sýni þarf að hafa í huga að þegar tekið er sýni úr verkuðu fóðri þarf það að hafa verkast í 4-6 vikur áður en sýni er tekið. Taka skal sýni sem endurspegla heyforðann og það sem á að gefa yfir veturinn. Hæfileg stærð sýnis ætti að vera á stærð við handbolta, því komið í plastpoka og gott að lofttæma hann sem mest, merkja vel og koma sem fyrst í frysti. Úr þurru eða þurrlegu heyi geta sýni tekin við hirðingu oft gefið góða hugmynd um innihald heyjanna þegar kemur að fóðrun þó frekar sé mælt með að taka sýni úr verkuðu fóðri.

Á heimasíðu RML er að finna fylgiseðil til að senda með heysýnum og eru bændur og aðrir sem taka sýni hvattir til að nota hann. Með því að fylla fylgiseðilinn út ýtarlega fara niðurstöður sýnanna inn í svokallaðan FAS gagnagrunn og skila niðurstöðurnar sér þannig inn í jarðræktarforritið Jörð og í NorFor kerfið og verða aðgengilegar í vinnu við heysýnatúlkun, fóður- eða áburðaráætlanir. Einnig er þetta mikilvæg gagnasöfnun til að halda utan um innihald heyja á Íslandi og þannig auðvelt að vinna ýmis meðaltöl og sjá breytingar sem verða milli ára.

Það sem er skráð á fylgiseðill er eftirfarandi:
• Sýnatökudagur
• Búsnúmer (7 stafa númer)
• Nafn og heimilisfang
• Netfang
• Landssvæði
• Merking fóðursýnis
• Slátturdagur
• Númer hvaða sláttur
• Velja einn fóðurkóða sem lýsir sýninu t.d. Eldri tún: Vothey og milliþurrar rúllur: Snemmslegið
• Verkunaraðferð (t.d. rúllur)
• Íblöndunarefni

Hjá efnagreiningarstofum er hægt að velja hve ýtarlegar greiningar eru gerðar og hvaða efni eru mæld. Ef gera á nákvæma fóðuráætun fyrir mjólkurkýr og þurrefni heyjanna er um 40% eða minna er mælt með að láta mæla gerjunarafurðir. Það þýðir að hjá Efnagreiningu ehf. væri þá valin „Efnagreining 6“. Séu heyin þurrari en 40% þe er mælt með „Efnagreiningu 4“. Hey sem ætlað er fyrir sauðfé eða hross hentar að setja í „Efnagreiningu númer 1, 2 eða 3“ eftir því hvort og þá hve mörg steinefni á að greina.

Hér finnur þú fylgiseðilinn:
Fóðurefnagreining 2022 

/okg