Hólmsteinn með frjósemiserfðavísi

Í kjölfar þess að í ljós kom að Fannar 23-925 frá Svínafelli bæri þokugen, sem er erfðavísir sem veldur aukinni frjósemi, voru fleiri hrútar stöðvanna teknir til skoðunar.

Hólmsteinn 24-955 frá Brattsholti, sonur Fannars 23-925 hefur nú verið greindur og kom í ljós að hann hefur erft þokugenið frá föður sínum og má því búast við að helmingur afkvæma Hólmsteins beri genið.

Nokkrir eldri hrútar eru til skoðunar sem eru að skila dætrum sem búa yfir mikilli frjósemi. Komin er niðurstaða fyrir þá Anga 18-882 frá Borgarfelli, Blossa 16-837 frá Teigi, Gimstein 21-899 frá Þernunesi og Hornstein 22-901 frá Þernunesi en enginn þeirra ber þokugen samkvæmt nýlegum greiningum frá Matís. Niðurstöður fyrir fleiri hrúta eru væntanlegar.

Um 150 þokugenssýni voru greind nú í vor frá bændum og hafa niðurstöður fyrir flest sýni þegar verið lesin inn í Fjárvís.

Á meðfylgjandi mynd er Hólmsteinn 24-955.

/okg