Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 8. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.
Á dagskrá eru afar áhugaverðir fyrirlestrar um áhrif erfða á gangtegundir hestsins og árangur af skimun og úrvali gegn spatti í íslenska hestinum, yfirferð yfir hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar.
Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:
- 13:00 Setning – Nanna Jónsdóttir formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
- 13:10 Hrossaræktarárið 2025 – Þorvaldur Kristjánsson
- 13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2025 og afkvæmahestar heiðraðir
- 13:50 Verðlaunaveitingar:
-Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins í kynbótadómi
-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
- Kaffihlé
- 14:15 Heiðrún Sigurðardóttir – Erfðafræðilegur grunnur gangtegunda íslenska hestsins: Niðurstöður, hagnýting og næstu skref
- 14:40 Sigríður Björnsdóttir - Spatt í íslenska hestinum og árangur af skimun fyrir sjúkdómnum
- 15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2025
Fundarslit um 16:15
Allir velkomnir!
/okg