Hrossaræktin 2026 – Ráðstefna

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 7. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.

Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:

  • 13:00 Setning – Ólafur Þórisson formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
  • 13:10 Hrossaræktarárið 2026 – Þorvaldur Kristjánsson
  • 13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2026 heiðraðar og afkvæmahestur
  • 13:50 Verðlaunaveitingar:
    -Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
    -Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
    -Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
  • Kaffihlé
  • Hófar og heilbrigði:
    • Áhrif hóflengdar á áhættuna á ágripum – Þorvaldur Kristjánsson
    • Hófar og heilbrigði – Gestur Páll Júlíusson
  • 15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2026

Fundarslit um 16:15

Allir velkomnir!

/okg