Hrútaskráin 2026-2027 er komin á vefinn

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna fyrir veturinn 2026-2027 er komin á vefinn. Skráin er á hefðbundnu pdf-formi og hægt er nálgast hana undir "Kynbótastarf -> Sauðfjárrækt -> Hrútaskrá" eða með því að nota hlekkinn hér neðar.

Skráin mun ylja áhugamönnum um sauðfjárrækt um hjartarætur og við vonum að sauðfjárræktendur og aðrir áhugamenn um sauðfjárrækt njóti lesningarinnar. Prentútgáfa skráarinnar kemur út öðru hvoru megin við næstu helgi og verður dreift með hefðbundnum hætti, m.a. á hinum svokölluðu hrútafundum. Tíma- og staðsetningu þeirra má t.d. finna í síðasta Bændablaði.

Skráin er 60 síður að stærð, litprentuð í A4-broti og inniheldur upplýsingar um 55 hrúta sem notaðir verða til sæðinga í vetur. Eins og undanfarin ár er endurnýjun á hrútakosti stöðvanna mikil og af þessum 55 hrútum eru aðeins 10 að hefja sinn annan vetur á stöð. Þeir 45 hrútar sem nú eru kynntir til leiks fyrsta sinni eru ungir að árum, 6 veturgamlir og 39 lambhrútar. Í hrútavalinu hefur, eins og undanfarin ár, verið lögð áhersla á hraða innleiðingu verndandi arfgerða gagnvart riðu og eftir föngum lágmörkun skyldleikaræktar. Fjöldi arfhreinna hrúta gagnvart riðumótstöðu eykst stöðugt og gæði þeirra fara ört vaxandi. Segja má að árangur bænda á sviði innleiðingar arfgerða gegn riðu án þess að ganga á kjötgæða- og mæðraeiginleika, svo orð sé á gerandi, sé með ólíkindum glæsilegur. Samhliða eru í boði nýir valkostir á sviði feld- og forystufjár og þeir feldhrútar sem nú eru kynntir bera framförum á því sviði glöggt vitni

Ritstjóri skráarinnar er Guðmundur Jóhannesson en efni skráarinnar er að mestu tekið saman og skrifað af Árna B. Bragasyni, Eyjólfi Ingva Bjarnasyni, Eyþóri Einarssyni, Fanneyju Ólöfu Lárusdóttur og Þórdísi Þórarinsdóttur. Flestar ljósmyndir í skránni tók Halla Eygló Sveinsdóttir auk myndar á forsíðu sem skartar tvílembu í grösugum fjallahögum Húsavíkur eystri. Auk hennar tóku Birna Sigurðardóttir og Eyþór Einarsson myndir af sitt hvorum hrútnum. Sigurður Kristjánsson las yfir, lagfærði og samræmdi málfar enda fáir betur til þess fallnir. Rósa Björk Jónsdóttir sá um hönnun, uppsetningu og umbrot og prentun er í höndum Fjölritunar- og útgáfuþjónustunnar í Borgarnesi. Hér með er kærum þökkum til þessara aðila og fjölmargra annarra er lögðu hönd á plóg komið á framfæri en að baki liggur gríðarmikil og óeigingjörn vinna sem sinnt var á knöppum tíma. Þá er auglýsendum sérstaklega þakkað þeirra framlag sem gerir þessa útgáfu mögulega í því formi sem hún er.

Við vonum að þið njótið lesningarinnar sem og hrútakostsins!

Sjá nánar:

Hrútaskrá - smellið hér >>>