Hrútaskráin er komin úr prentun

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna veturinn 2018-2019 er komin úr prentun og bíður nú glóðvolg dreifingar til sauðfjárræktenda og áhugamanna um sauðfjárrækt um land allt. Að venju verður hún til dreifingar á hrútafundum haustsins þar sem farið er yfir hrútakost stöðvanna í máli og myndum. Fyrstu hrútafundir haustsins verða á Suður- og Vesturlandi og hefjast miðvikudaginn 21. nóvember nk. með fundi á Kirkjubæjarklaustri kl. 13:30.

Tíma- og staðsetningar annarra funda verða kynntar á heimasíðunni innan tíðar en voru einnig kynntir í síðasta Bændablaði.

/gj