Huppa frá Kluftum. Málverk eftir Halldór Pétursson.
Hún á afmæli í dag, hún Huppa frá Kluftum. Þessi mikla ættmóðir íslenska kúastofnsins hefði orðið 100 ára í dag ef hún hefði lifað. Við minnm á að í tilefni af þessum tímamótum standa Búnaðarsamband Suðurlands, Hrunamannahreppur og Nautgriparæktarfélag Hrunamanna fyrir málþingi og afmælisfagnaði í félagsheimilinu á Flúðum um leið og við óskum íslenskri nautgriparækt til hamingju með afmælisbarnið. Málþingið er öllum opið og allir velkomnir! Málþingið hefst kl. 11.00 og áætlað er að það standi til kl. 15.20 en þá tekur við veglegt kaffisamsæti til heiðurs afmælisbarninu. Í hádeginu mun Auðhumla svf. bjóða upp á veitingar sem saman standa af mjólkurafurðum afkomenda Huppu en líklega er hægt að rekja ættir nánast allra nautgripa á landinu til þessa merkisgrips.
Huppa er eða var nefnilega sérstakur gripur, ekki bara á íslenskan mælikvarða heldur einnig á heimsvísu. Ólíklegt er að nokkur kýr í heiminum eigi jafn stóra hlutdeild í erfðamengi nokkurs kúakyns í heiminum eins og hlutur Huppu í íslenska kúastofninum er. Reynt verður að varpa ljósi á ástæður þess á málþinginu en dagskráin er fjölbreytt þó hún sé einkum tileinkuð afmælisbarninu.
Dagskrá
11:00 Setning
11:05 Kluftir í Hrunamannahreppi - Björn Bjarndal Jónsson
11:25 Æviferill Huppu 12 á Kluftum og afkvæma hennar - Jón Viðar Jónmundsson
11:45 Helgi á Hrafnkelsstöðum - Gunnlaugur Karlsson
12:05 Hádegishlé
12:35 Hvað vitum við um erfðamengi Huppu? - Egill Gautason
12:55 Áhrif Kluftastofnsins á sunnlenska nautgriparækt og borgfirska - Magnús B. Jónsson
13:15 Innrás Klufta-kynsins í Eyjafjörð - Sigurgeir B. Hreinsson
13:35 Fyrsta dreifing erfðavísa Huppu 12 í ýmsum héruðum - Jón Viðar Jónmundsson
13:55 Umræður og stutt fundarhlé
14:10 Kynning á Huppu-horninu - Marta Esther Hjaltadóttir
14:20 Kúalitir - þróun á dreifingu í íslenska stofninum - Sigríður Bjarnadóttir
14:40 Örfá atriði um nöfn nautgripa - Guðmundur Jóhannesson
15:00 Erfðahlutdeild Huppu frá Kluftum í íslenska kúastofninum - Jón Hjalti Eiríksson og Jón Viðar Jónmundsson
15:20 Málþingsslit og afmæliskaffi Huppu 100 ára