Huppa 100 ára

Huppa frá Kluftum. Myndin sýnir hluta málverks eftir Halldór Pétursson sem BÍ gaf Nautgriparæktarfél…
Huppa frá Kluftum. Myndin sýnir hluta málverks eftir Halldór Pétursson sem BÍ gaf Nautgriparæktarfélagi Hrunamanna á 50 ára afmæli Huppu 3. nóv. 1976. Málverkið er í Huppusalnum í félagsheimilinu á Flúðum.

Þriðjudaginn 3. nóvember n.k. hefði ættmóðir íslenska kúastofnsins, Huppa frá Kluftum, orðið 100 ára ef hún hefði lifað. Í tilefni af þessum tímamótum standa Búnaðarsamband Suðurlands, Hrunamannahreppur og Nautgriparæktarfélag Hrunamanna fyrir málþingi og afmælisfagnaði í félagsheimilinu á Flúðum. Málþingið hefst kl. 11.00 og áætlað er að það standi til kl. 15.20 en þá tekur við veglegt kaffisamsæti til heiðurs afmælisbarninu. Í hádeginu mun Auðhumla svf. bjóða upp á veitingar sem saman standa af mjólkurafurðum afkomenda Huppu en líklega er hægt að rekja ættir nánast allra nautgripa á landinu til þessa merkisgrips.

Huppa er eða var nefnilega sérstakur gripur, ekki bara á íslenskan mælikvarða heldur einnig á heimsvísu. Ólíklegt er að nokkur kýr í heiminum eigi jafn stóra hlutdeild í erfðamengi nokkurs kúakyns í heiminum eins og hlutur Huppu í íslenska kúastofninum er. Reynt verður að varpa ljósi á ástæður þess á málþinginu. Huppa skipar líka sérstakan sess í augum áhugamanna um nautgriparækt, íslenskra kúabænda og ekki síst Hrunamanna. Sem dæmi um hve miklar mætur menn hafa á henni og hennar orðspori er salur í félagsheimilinu á Flúðum nefndur Huppusalur og gagnagrunnur íslenskrar nautgriparæktar ber heiti Huppu.

Málþingið og afmælisfagnaðurinn er öllum opinn og áhugamenn um nautgripi og nautgriparækt sérstaklega velkomnir og ættu ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara. Þá er þetta fullkomið tilefni til að hittast og gera sér glaðan dag um leið og afmælisbarnið verður heiðrað.

Dagskrá

11:00 Setning

11:05 Kluftir í Hrunamannahreppi - Björn Bjarndal Jónsson

11:25 Æviferill Huppu 12 á Kluftum og afkvæma hennar - Jón Viðar Jónmundsson

11:45 Helgi á Hrafnkelsstöðum - Gunnlaugur Karlsson

12:05 Hádegishlé

12:35 Hvað vitum við um erfðamengi Huppu? - Egill Gautason

12:55 Áhrif Kluftastofnsins á sunnlenska nautgriparækt og borgfirska - Magnús B. Jónsson

13:15 Innrás Klufta-kynsins í Eyjafjörð - Sigurgeir B. Hreinsson

13:35 Fyrsta dreifing erfðavísa Huppu 12 í ýmsum héruðum - Jón Viðar Jónmundsson

13:55 Umræður og stutt fundarhlé

14:10 Kynning á Huppu-horninu - Marta Esther Hjaltadóttir

14:20 Kúalitir - þróun á dreifingu í íslenska stofninum - Sigríður Bjarnadóttir

14:40 Örfá atriði um nöfn nautgripa - Guðmundur Jóhannesson

15:00 Erfðahlutdeild Huppu frá Kluftum í íslenska kúastofninum - Jón Hjalti Eiríksson og Jón Viðar Jónmundsson

15:20 Málþingsslit og afmæliskaffi Huppu 100 ára