Hver er þín skoðun á vef RML?

Þessa dagana stendur yfir endurhönnun á vef RML. Markmiðið er að vefurinn verði eins notendavænn, skýr og þjónustumiðaður og kostur er á. Í þeirri vinnu er afar mikilvægt að fá upplýsingar um sjónarmið þeirra sem nota vefinn hvort svo sem notkun er mikil eða lítil. Til að afla þeirra upplýsinga hefur verið sett upp könnun sem vonandi sem allra flestir sjá sér fært að svara.

Hægt verður að svara könnuninni til kl. 18:00 mánudaginn 30. júní.

Það tekur um það bil 8-10 mínútur að svara könnunni ekki verður hægt að rekja svör til þátttakenda.

Þín skoðun skiptir miklu máli!

Sjá nánar:
Smellið hér til að taka þátt í könnun

/okg