Innlestur á arfgerðargreiningum frá Matís er hafinn

Mynd: Anna G
Mynd: Anna G

Eins og flestum er nú kunnugt hefur Matís tekið við að greina arfgerðarsýni sauðfjár.  Matís tók við af Íslenskri erfðagreiningu um áramótin og hafa fyrstu vikurnar farið í að setja upp búnaðinn og hefja greiningar.  Núna eru greiningar í fullum gangi og við erum byrjuð að lesa inn í Fjárvís langþráðar niðurstöður.

Búist er við að á næstu vikum komi niðurstöður nokkuð þétt, þar sem verið að vinna úr því sem barst fyrir og um jólin. Niðurstöður verða lesnar inn í Fjárvís um leið og þær berast okkur frá Matís.

Gott er að hafa í huga að þegar niðurstöður hafa verið lesnar inn, er hægt að sjá þær í yfirliti grips undir flipanum "arfgerðargreiningar".  Flöggin koma á gripina daginn eftir innlestur þar sem þau eru uppfærð á nóttunni.

Aðrar arfgerðargreiningar eins og þokugen og bógkreppu má ekki gleyma að forskrá undir skráningarflipanum „forskráning á öðrum arfgerðargreiningum“

ghg/agg