Íslensk hrossarækt í 100 ár - Stefnumótun hrossaræktarinnar
Ráðstefna haldin laugardaginn 3. Desember
Félag hrossabænda, Háskólinn á Hólum, Matvælastofnun, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og Sögusetur íslenska hestsins.
Í ár eru tímamót í íslenskri hrossarækt í ýmsum skilningi. Það eru 110 ár frá því að fyrsta kynbótasýningin var haldin, 100 ár frá fæðingu Sörla 71 frá Svaðastöðum sem er einn helsti ættfaðir íslenska hestsins í dag, 30 ár frá upptöku BLUP-kerfisins, 25 ára afmæli nútíma skýrsluhalds og í ár er 100 ára afmælisár Gunnars Bjarnasonar fyrrv. hrossaræktarráðunautar, brautryðjanda sýningarhalds og markaðssetningar á íslenska hestinum.
Því er vel við hæfi að líta yfir farinn veg og skoða hvernig til hefur tekist; fara yfir sögu og þróun hrossaræktarinnar, rannsóknir á íslenska hestinum og stöðu þekkingar. Ekki er síður mikilvægt að marka stefnu til næstu ára; móta ræktunarmarkmiðin og matið á hestinum í kynbótadómum; sjá fyrir sér hlutverk hestins og notendur hans í framtíðinni og hvernig hestahaldið kemur til með að þróast.
Af þessu tilefni er efnt til vinnufundar hrossaræktarinnar þar sem við fræðumst og förum yfir stöðuna í áhugaverðum fyrirlestrum. Einnig er hugmyndin að virkja fundarfólk til þátttöku í stefnumótun fyrir íslenska hestinn og hafa áhrif á mótun ræktunarmarkmiðsins og matsaðferða á hrossum í kynbótadómi.
Staðsetning: Samskipahöllin í Spretti
Tímasetning: 3. desember kl. 10:00 - 17:00
Dagskrá:
Ráðstefnustjóri: Ágúst Sigurðsson
- 10:00 - 10:20 Saga íslenskrar hrossaræktar og notkunar hestsins í 100 ár - Kristinn Hugason
- 10:30 - 10:50 Rannsóknir í þágu hestsins - Sveinn Ragnarsson
- 11:00 - 11:20 Þróun kynbóta og næstu skref í þekkingaröflun - Þorvaldur Árnason
- 11:30 - 11:50 Þróun notkunar hestsins og keppnisgreina - Anton Páll Níelsson
- 12:00 Matarhlé
- 13:00 - 13:20 Velferð, ending og frjósemi hestsins - Sigríður Björnsdóttir
- 13:30 - 13:50 Hrossaræktin og markaðurinn - Olil Amble
- 14:00 - 14:20 Þróun ræktunarmarkmiðsins - Þorvaldur Kristjánsson
- 14:20 - 16:00 Stefnumótun - Hópavinna
- Kaffihlé - 20 mínútur
- 16:20 - 16:50 Samantekt - Hópstjórar kynna afrakstur hópavinnunnar
- 16:50 - 17:00 Lokasamantekt og ráðstefnuslit
Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta. Þátttakendur eru beðnir um skrá sig á ráðstefnuna í gegnum tengil hér neðst á síðunni.
Skráning á ráðstefnuna Íslensk hrossarækt í 100 ár
þk/okg