Þann 1. október rennur út frestur til að sækja um landgreiðslur og jarðræktarstyrki. Þeir bændur sem þurfa aðstoð við skráningar á ræktun, áburðargjöf og uppskeru eða þurfa að láta teikna upp eða breyta túnkortum verða að hafa samband við RML sem allra fyrst til að tryggja sér þjónustu fyrir umsóknarfrest.
Líkt og undanfarin ár þurfa bændur að skila jarðræktarskýrslu í Jörð.is áður en þeir geta sótt um landgreiðslur og jarðræktarstyrki í Afurð.is.
Vakin er athygli á því að í nýuppfærðu mælaborði í Jörð.is geta bændur núna séð upplýsingar um skráða ræktun og uppskeru í tímalínu, bæði fyrir sitt bú og einnig á landsvísu. Einnig er vakin athygli á því að bændur geta sjálfir fært spildur á milli búa og þeim fylgir þá öll ræktunarsagan sem hefur verið skráð. Aðeins þeir bændur sem eru með tilteknar spildur hverju sinni geta veitt öðrum bændum aðgang að þeim. Þetta er gert á spildusíðunni og þar er valið "Flytja spildur". Þá opnast gluggi þar sem velja þarf það bú sem á að fá spildu/r og svo eru þær spildur valdar úr lista.
/okg