Kartöflu- og kornskoðun með Benny Jensen

Dagana 17. - 19. júní var kartöflu- og kornráðunauturinn Benny Jensen frá BJ Agro í Danmörku við störf hér á landi ásamt Magnúsi Ágústssyni frá RML. Þeir fóru víða um kartöflugarða og meðal annars í Eyjafjörð þar sem ráðunautarnir Eiríkur Loftsson, Sigurður Jarlsson og Borgar Páll Bragason bættust í hópinn. Saman skoðuðu þeir kartöflur og korn í Eyjafirði og farið var yfir atriði eins og varnarefnanotkun, illgresi, sjúkdóma og skortseinkenni. Ferðin var bæði skemmtileg og gagnleg fyrir alla aðila.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru í Eyjafirði.  

Kartöflur skoðaðar

Kartöflugarður

 bpb/okg