Kornskoðun í Gunnarsholti 16. júní

Þriðjudaginn 16. júní klukkan 10:00 mun Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins í samstarfi við Björgvin Harðarson í Laxárdal bjóða bændum og öðrum áhugasömum um kornrækt, til kornskoðunar í Gunnarsholti.

Til skrafs og ráðagerðar verða jarðræktarráðunautar RML, Benny Jensen, sérfræðingur í korni og kartöflum frá BJ Agro ásamt Björgvini. Umræðuefnið verður einkum það sem við sjáum þegar við göngum um og rýnum í akrana og farið verður yfir þau atriði og viðbrögð sem skipta máli til að ná sem bestum árangri í kornræktinni.


/okg