Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

Baldur Helgi Benjamínsson og Elín Nolsöe Grethardsdóttir (Mynd: Guðrún Björg Egilsdóttir).
Baldur Helgi Benjamínsson og Elín Nolsöe Grethardsdóttir (Mynd: Guðrún Björg Egilsdóttir).

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2019, var veitt á fagfundi nautgriparæktarinnar fimmtudaginn 22. október s.l. Besta nautið í árgangi 2019 var valið Kvóti 19042 frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði. Ræktendur Kvóta 19042 eru þau Elín Nolsöe Grethardsdóttir og Baldur Helgi Benjamínsson og tóku þau við viðurkenningunni úr höndum Sveinbjörns Eyjólfssonar forstöðumanns Nautastöðvarinnar. Kvóti 19042 var fæddur 8. október 2019, undan Sjarma 12090 og Angelu 1055 Úlladóttur 10089.

Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur í nautgriparækt hjá RML, fór nokkrum orðum um Kvóta 19042 fyrir afhendingu viðurkenningarinnar. Þar kom fram að þetta mun vera í fyrsta skipti sem annar ættliður ræktenda hlýtur þessa viðurkenningu en faðir Baldurs Helga, Benjamín Baldursson, hlaut viðurkeningu fyrir ræktun Vindils 05028 á sínum tíma. Kvóti 19042 hlaut eftirfarandi umsögn fyrir dætur: Dætur Kvóta eru júgurhraustir afurðagripir, mjólkurlagnar kýr með fituhlutfall í mjólk um meðallag og gríðarhátt próteinhlutfall. Þetta eru meðalgripir að stærð, háfættir með boldýpt og útlögur í meðallagi og eilítið veika yfirlínu. Malirnar eru meðalbreiðar, beinar og fremur flatar. Fótstaða er sterkleg og allgleið. Júgurgerðin er meðalgóð, júgurfesta í meðallagi, júgurband mjög áberandi en júgrin tæpast nógu vel borin. Spenar eru vel gerðir, eilítið stuttir en hæfilegir að þykkt og ákfalega vel settir. Mjaltir eru meðalgóðar og lítið um mjaltagalla. Skap þessara kúa er frábært og skapgallaðir gripir mjög fáir í dætrahópnum. Kvóti 19042 hlýtur nafnbótina besta nautið fætt árið 2019.

Fagráð í nautgriparækt, Nautastöðin, Bændasamtökin og RML óska ræktendum þeim Elínu Nolsöe og Baldri Helga til hamingju með viðurkenninguna og þakka fyrir hönd kúabænda fyrir ræktun þessa góða kynbótagrips.