Kynbótahross á Fjórðungsmóti

Fjórðungsmót verður haldið í Borgarnesi, dagana 2. – 6. júlí. Hross sem eru í eigu aðila á Vesturlandi, Kjós, Vestfjörðum, Húnavatnssýslum, Skagafirði eða Eyjafirði eiga þáttökurétt á mótinu og er miðað við að lágmarki 25% eignarhlut.

Stöðulista má sjá á WorldFeng yfir þau hross sem hafa unnið sér þáttökurétt á mótinu og liggur sá listi endanlega fyrir þegar yfirlitssýningu lýkur á Hólum í dag, 23. júní.

Eigendur hrossa sem vinna sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum eru beðnir um að láta vita fyrir klukkan 16:00 miðvikudaginn 25. júní, þannig að hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu.

Hægt er að láta vita í síma 866-2199 eða á tölvupósti: thorvaldur(hjá)rml.is

/hh