Kynbótasýning í tengslum við Fjórðungsmót á Fljótsdalshéraði

Austfirðingar hafa í samráði við RML ákveðið að bjóða upp á hefðbundna kynbótasýningu í tengslum við Fjórðungsmótið á Stekkhólma 6. til 9. júlí. Reiknað er með að dómar verði 5. og 6. júlí og yfirlitssýning föstudeginum 7. júlí. Opnað var á skráningar á sýninguna í dag 7. júní og verður opið fyrir skráningar til miðnættis sunnudaginn 25. júní. Það verða því engar fjöldatakmarkanir eða einkunnalágmörk eins og venja er á Fjórðungsmótum. Þessi kynbótasýning er öllum opin hvar svo sem eigendur eru búsettir á landinu. Skráning fer fram á heimasíðu RML á sama hátt og aðrar kynbótasýningar enda um hefðbundna kynbótasýningu að ræða.

Sýningagjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er 39.350 kr. en fyrir sköpulagsdóm/hæfileikadóm 30.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð og greiðsla framkvæmd, birtist hrossið strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna.

Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.

Endurgreiðslur á sýningagjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt með tölvupósti fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku á netfangið rml@rml.is. Endurgreitt er 22.500 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 17.200 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. ágúst. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:
 - Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
 - Allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra.
 - Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
 - Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
 - Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar og skráning liggi fyrir í WorldFeng. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa, og uppfylla ekki þessi skilyrði, verður vísað frá sýningu strax hjá mælingamanni án undantekninga. Sýningargjald er ekki endurgreitt í slíkum tilfellum.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni. Einnig er hægt að hringja í síma 516-5000 eða senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is.

Sjá nánar: 
Skrá á kynbótasýningu
Ýmsar upplýsingar um kynbótasýningar

/okg