Kynbótasýningar 2026

Birt hefur verið áætlun fyrir kynbótasýningar árið 2026. Landsmót verður haldið í þriðja sinn að Hólum í Hjaltadal, það byrjar þann 5. júlí og endar laugardagskvöldið 11. júlí.

Vorsýningum lýkur miðvikudaginn 24. júní og er reynt að teygja þær eins nálægt mótinu og hægt er. Að þeim loknum tekur við útreikningur á kynbótamati sem röðun afkvæmahesta á landsmóti grundvallast á og annar undirbúningur vegna sýninga kynbótahrossa á mótinu. Tilkynnt verður um fjölda kynbótahrossa á landsmóti og tilhögun valsins um leið og það liggur fyrir frá fagráði. Ákveðið var að byrja viku fyrr sunnanlands en verið hefur og einnig að bjóða upp á heldur fleiri sýningar norðan heiða. Þá verður kynbótasýning á Mið-Fossum á Vesturlandi en sýning var haldin þar í fyrra í fyrsta skipti síðan 2016 og tókst vel.

Hér að neðan má sjá sýningaáætlun ársins 2026: 

Afar spennandi sýningarár er í vændum og miðað við framfarir síðustu ára er mikils að vænta af kynbótahrossum þessa lands.

/okg