Kynbótasýningar 2026 og val kynbótahrossa á Landsmót

Nú er búið að stilla upp áætlun fyrir kynbótasýningar árið 2026 og hefur hún verið birt hér á vefnum. Ákveðið var að byrja viku fyrr sunnanlands en verið hefur og einnig að bjóða upp á heldur fleiri sýningar norðan heiða. Þá verður kynbótasýning á Mið-Fossum á Vesturlandi en í fyrra var haldin sýning þar í fyrsta skipti síðan 2016 og tókst vel. Afar spennandi sýningarár er í vændum og miðað við framfarir síðustu ára er mikils að vænta af kynbótahrossum þessa lands.

Opnað verður á skráningu á kynbótasýningarnar um mánaðarmótin apríl/maí og nánar verður þá tilkynnt um skráningarfresti á einstakar sýningar.

Vorsýningar:
18. - 21. maí Rangárbakkar
26. - 29. maí Rangárbakkar
1. - 5. júní Rangárbakkar
1. - 5. júní Sörlastaðir
1. - 5. júní Hólar
8. - 11. júní Rangárbakkar
8. - 12. júní Sörlastaðir
8. - 12. júní Mið-Fossar
8. - 12. júní Akureyri
15. - 19. júní Rangárbakkar
15. - 19. júní Víðidalur
15. - 19. júní Hólar
22. - 24. júní Rangárbakkar
22. - 24. júní Hólar
5. - 11. júlí Landsmót að Hólum
 
Miðsumarssýningar:

20. - 24. júlí Rangárbakkar
20. - 24. júlí Akureyri

Síðsumarssýningar:

10. - 13. ágúst Rangárbakkar
17. - 21. ágúst Rangárbakkar
17. - 21. ágúst Hólar

Landsmót - inntökuskilyrði
Landsmót verður haldið í þriðja sinn að Hólum í Hjaltadal og hefst það 5. júlí og endar laugardagskvöldið 11. júlí. Síðustu vorsýningum lýkur miðvikudaginn 24. júní en reynt er að teygja þær eins nálægt mótinu og hægt er. Að þeim loknum tekur við útreikningur á kynbótamati en röðun afkvæmahesta á Landsmóti grundvallast á því og annar undirbúningur vegna sýninga kynbótahrossa á mótinu.

Fagráð í hrossarækt tók ákvörðun nú í febrúar um val kynbótahrossa inn á Landsmót 2026. Fyrirkomulag við val kynbótahrossa inn á mótið verður að mestu leyti sambærilegt og síðast.

Nú er þó sérstaklega lögð áhersla á að auðvelda þátttöku fleiri úrvals klárhrossa. Ákveðið hefur verið að velja 160 hross inn á mótið samkvæmt aðaleinkunn (sjá nánar um fjölda í hverjum flokki í töflu). Í flestum flokkum er fjöldinn sá sami og á síðasta Landsmóti. Hins vegar hefur verið fækkað um fimm hross í elsta flokki stóðhesta og um fimm í elsta flokki hryssna, þannig að nú verða valin 10 hross í hvorum þeirra flokka. Auk þess verða 10 hross valin sérstaklega af stöðulista miðað við aðaleinkunn án skeiðs, óháð kyni og aldri. Hér er um að ræða 10 efstu hrossin eftir aðaleinkunn án skeiðs sem ekki eru þegar á meðal þeirra 160 sem þegar hafa verið valin. Gera má ráð fyrir að þar verði um að ræða úrvals klárhross á ýmsum aldri, bæði hryssur og stóðhesta. Þannig verður heildarfjöldi kynbótahrossa sá sami á mótinu eins og síðast eða 170 hross.

Þegar kynbótasýningar byrja í vor verður birtur stöðulisti í WorldFeng sem sýnir hvaða hross eru inni á mótinu hverju sinni. Ef fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið (til dæmis fleiri en ein hryssa í 10. sæti í flokki 7 vetra og eldri hryssna) þá er þeim öllum heimil þátttaka á mótinu. Eins verða eigendur hrossa sem vinna sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum beðnir um að láta vita fyrir ákveðna dagsetningu, þannig að hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu.

10 hross valin eftir aðaleinkunn án skeiðs: Heildarfjöldi á mótinu er því 170 hross.

/okg