Lagfæringar á fósturtalningu og fósturyfirliti

Nú eftir hádegið fór í loftið uppfærsla á Fjárvís.is sem snýr að skráningu á fósturtalningu, yfirliti yfir talin fóstur og fangyfirliti.

Yfirlit yfir talin fóstur er orðið aðgengilegt á ný, en það er staðsett í fangyfirlitinu. Þá var skráning fóstra lagfærð þannig að auðveldara er að velja marga gripi í einu og fangyfirlit lagað þannig að athugasemdir í fósturtalningu eru nú sjáanlegar í dálknum „Athugasemd talningar“ í fangyfirliti.

Í skráningu fyrir fósturtalningu er blátt spurningamerki efst í gripalistanum. Ef smellt er á spurningamerkið birtast frekari leiðbeiningar um hvernig er hægt að velja marga gripi samtímis úr listanum.

/okg