Lambadóma þarf að skrá eigi síðar en 2. nóvember

Nú er lambadómum almennt lokið. Næsta verkefni er vinnsla hrútaskrár og er sú vinna í fullum gangi. Áríðandi er að fá alla dóma skráða inn í Fjárvís þannig að gögnin nýtist við vinnslu hrútaskrár en jafnframt er það hagur bænda til að fá auknar upplýsingar um eigin kynbótagripi fyrir vinnslu á kynbótamati.

Í hrútaskrá verður að vanda birt yfirlit yfir meðaltöl úr dómum. Þá eru ómmælinganiðurstöður nýttar fyrir kynbótamat fyrir bakvöðvaþykkt og fituþykkt og þessar niðurstöður hafa áhrif á kynbótamat fyrir gerð og fitu þar sem þetta eru nátengdir eiginleikar. Þá er æskilegt að sem mest af sláturgögnum sé staðfest í Fjárvís þannig að sem réttastar upplýsingar séu nýttar við keyrslu á kynbótamati fyrir gerð og fitu.

Þeir bændur sem lúra á óskráðum dómum eru eindregið hvattir til að skrá þá sem fyrst en eigi síðar en sunnudaginn 2. nóvember.

/okg