Lambadómar 2026 - pantanir þurfa að berast sem fyrst

Við viljum minna bændur á að panta lambadóma sem fyrst svo skipuleggja megi þessa vinnutörn með sem hagkvæmustum hætti fyrir alla. Eins og áður hefur komið fram njóta pantanir sem bárust fyrir 20. ágúst forgangs hvað varðar óskatímasetningu hjá hverjum og einum. Talsvert er komið inn af pöntunum og því um að gera að draga það ekki lengi að panta tíma fyrir sínn lambahóp.

Eftirtaldir starfsmenn munu sjá um skipulag lambadóma á komandi hausti:

  • Gullbringu- og Kjósarsýsla, Borgarfjörður, Snæfellsnes, Dalasýsla, Barðastrandarsýslur og Ísafjarðarsýslur: Árni Brynjar Bragason og Oddný Kristín Guðmundsdóttir
  • Strandasýsla og Húnavatnssýslur: Sigríður Ólafsdóttir
  • Skagafjörður og Eyjafjörður: Sigurlína Erla Magnúsdóttir
  • Suður- og N-Þingeyjarsýsla og Vopnafjörður: Guðrún Hildur Gunnarsdóttir
  • Múlasýslur: Guðfinna Harpa Árnadóttir
  • Skaftafellsýslur, Rangárvallasýsla og Árnessýsla: Fanney Ólöf Lárusdóttir

Sjá nánar:
Frétt frá 24. júní 2026
Panta lambadóma

 

/hh