Lambadómar – opnað fyrir pantanir

Móttaka á pöntunum á lambadómum er nú hafin. Best er að bændur panti sjálfir í gegnum heimasíðu RML (sjá tengil á forsíðu) en einnig er hægt að hringja í 516-5000 og láta taka pöntunina niður. Eindregið er óskað eftir því að bændur panti fyrir 15. ágúst svo skipuleggja megi þessa vinnu með sem hagkvæmustum hætti.

Pantanir sem berast fyrir 15. ágúst njóta forgangs við niðurröðun og þeir sem panta síðar geta lent í verri stöðu með að fá lambaskoðun á þeim tíma sem þeir óska eftir. Síðasti dagur sem hægt er að biðja um lambadóma er föstudagurinn 18. október.

Aðstoð frá t.d. forsvarsmönnum fjárræktarfélaga við að ná sem bestri nýtingu á vinnudag dómara á hverju svæði er mjög vel þegin og kemur öllum sem að þessu koma til góða. Þar sem leyfilegt er, getur verið hagræði af því fyrir alla að bændur komi saman með minni lambahópa.

Sjá nánar:
Panta lambamælingu 2019