Landgreiðslur - hvað er það?

Samkvæmt nýjum rammasamningi milli Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Bændasamtaka Íslands, samþykktum þann 19. feb. 2016 er meðal annars fjallað um landgreiðslur sem Matvælastofnun á að ráðstafa. Í rammasamningi segir „Landgreiðslur skulu greiddar út á allt ræktað land sem er uppskorið til fóðuröflunar. Ekki er greitt út á land sem eingöngu er nýtt til beitar. Skilyrði fyrir greiðslum er að til sé viðurkennt túnkort fyrir spildur sem sótt er um framlög fyrir og spildurnar séu uppskornar á því ári þegar framlag er greitt enda liggi fyrir uppskeruskráning.“

Í reglugerð nr. 1240/2016 um almennan stuðning við landbúnað er nánar kveðið á um landgreiðslur. Þar kemur m.a. fram að fullnægjandi skil á skýrsluhaldi verði að vera til staðar til að njóta jarðræktarstyrkja og landgreiðslna. Kröfurnar eru m.a. eftirfarandi:

• Nafn og/eða númer spildu,
• Hnitsetning spildu (stafrænt túnkort)
• Ræktun, þ.e. gras, grænfóður, korn, olíujutir eða útiræktað grænmeti
• Tegund og yrki þegar sótt er um jarðræktarstyrk
• Stærð spildu
• Ræktunarár, ef ræktað síðstliðin 5 ár
• Heildaruppskera í kg þurrefnis fyrir hverja spildu
• Heildaruppskeru í kg í útiræktuðu grænmeti.

Framlög á ha taka mið af heildarfjölda ha sem sótt er um því árleg heildargreiðsla deilast jafnt út á þá ha sem sótt er um stuðning fyrir. Í viðauka við rammasamning kemur fram að heildarlandgreiðslur árið 2017 verði 247 milljónir en síðan 246 og 245 en hækka í 342 milljónir árið 2020.

Erfitt er að áætla hver greiðsla verður á hvern hektara en reikna má með að í byrjun verði greiðslur hærri þar sem einhver hluti bænda verður ekki tilbúinn að uppfylla öll skilyrði til að njóta landgreiðslna. Nefndar hafa verið tölur frá 3.000 kr/ha og upp undir 8.000 kr/ha á þessu ári, sem tekur mið af að sótt verði um landgreiðslur vegna 31 þúsund til 82 þúsund hektara.

Reynslan verður hins vegar að skera úr um hver greiðsla á ha. árið 2017 verður en ljóst er þó að eftir einhverju er að slægjast og miðað við vinnu bónda við að uppfylla skilyrði má fullyrða að fá verk verða betur launuð við bústörfin.

Á næstu vikum mun RML í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands bjóða upp á námskeið í Jörð.is þar sem markmiðið verður fyrst og fremst að kenna bændum hvernig þeir uppfylla skilyrði fyrir landgreiðslum og ræktunarstyrkjum.

sj/okg