Leiðbeiningar um hauststörfin vegna Covid 19

Heimsóknir til bænda á vegum RML vegna hauststarfa 2020 verða með breyttu sniði vegna Covid 19.
Sóttvarnarteymi RML hefur gefið út leiðbeiningar til starfsmanna og verktaka vegna hauststarfa. Byggja þær leiðbeiningar á tilmælum yfirvalda og sóttvarnarlæknis sem eru aðgengilegar á síðunni covid.is.

Heimsóknir
Almennt er ekki mælt gegn því að farið sé í heimsóknir til bænda á vegum RML, sé hægt að halda reglu um fjarlægðamörk eða grímuskyldu þar sem hún á við og hægt er að viðhafa sóttvarnir samkvæmt sóttvarnarreglum.

Varðandi komu erlendra aðila á vegum RML til landsins þá þarf það að skoðast í hvert skipti og frá og með 19.ágúst, verður ekki heimilt að hleypa inn til landsins nokkrum erlendum aðilum á vegum RML nema í samráði viðbragðsteymið RML. 

Sóttvarnir
Starfsmenn og verktakar á vegum RML skulu nota grímur þar sem ekki er hægt að halda eins meters fjarlægð. Mælst er til þess að viðskiptavinir geri slíkt hið sama og í öllu tilfellum verði reglur um fjarlægð og sóttvarnir tryggðar. Sóttvarnarbúnaður verður til staðar í bílum RML.

Í vor voru gefnar út leiðbeiningar um sóttvarnir og landbúnað og eru þær leiðbeiningar aðgengilegar á heimasíðu RML. Smellið hér.

Starfsmenn og verktakar RML skulu nota rakningarapp (rakning C-19 ) í símanum. Sé rakningar app ekki virkt í síma þá þurfa að liggja fyrir upplýsingar um hvar viðkomandi var og hverja hann hitti í heimsóknum á vegum RML utan starfstöðva.  

Starfsmenn og verktakar RML eru jafnframt beðnir að gæta sérstaklega að sóttvörnum og takmarki þátttöku í hvers konar viðburðum eins og kostur er fjóra daga fyrir heimsóknir til bænda og yfir það tímabil sem viðkomandi er að heimsækja bændur.  

Finni starfsmenn eða verktakar RML  fyrir mögulegum einkennum Covid 19 eru skýr fyrirmæli um að þeir mæti alls ekki til vinnu og láti vita af hugsanlegu smiti hjá sér eða öðrum sem viðkomandi hefur verið í nánum tengslum við. Lista yfir mögulega einkenni má nálgast hér á síðu landlæknis.

Aðstæður heima á bæjum
Bændur eru beðnir um að tryggja aðstæður heima á bæjum eins og unnt er og gæta þess að ekki séu fleiri við störf en nauðsynlegt er þegar ráðunautar eru við störf sín heima á bæjum.

Mikilvægt að bændur láti vita strax til RML komi upp smit, grunur um smit eða einkenni hjá heimafólki hvort sem starfsmenn hafi verið á bænum eða eru væntanlegir í heimsókn. Hringið í síma 5165000   eða sendið tölvupóst á rml@rml.is

Komi upp þær aðstæður að grunur er um smit eða veikindi eða starfsmenn þurfa að fara í sóttkví þá gætu skoðanir eða heimsóknir fallið niður með stuttum fyrirvara.

Sóttvarnarteymi RML