Leví í lagi

Í haust kom fram tilkynning um að hrúturinn Leví 25-832 frá Hófgerði bæri erfðavísi fyrir bógkreppu. Niðurstöður voru reyndar ekki tryggar, því illa hafði gengið að greina sýni úr honum og niðurstaða barst ekki fyrr en sæðingar voru komnar á fullt og aðeins frá annarri rannsóknarstofunni sem hafði þá gert endurtekna greiningu á sýninu. En öll bógkreppu sýni sl. haust úr stöðvahrútum voru bæði greind hérlendis og erlendis. Þegar þessi staða var kominn upp var ákveðið að kippa hrútnum úr sæðingum. Í vetur var síðan tekið nýtt sýni úr hrútnum og einnig tekið sýni úr móður hans. Bæði þessi sýni virðast þó vera án bógkreppu. Sýnið sem greint var í desember virðist því hafa gefið falska niðurstöðu.
Bændur eru því hvattir til að stefna óhikað á að setja lömbin á undan Leví og ætti ekki að þurfa að greina þau sérstaklega.

/okg