Loftslagsvænn landbúnaður býður bændum og öðrum áhugasömum um landbúnað til vinnustofu í Svartárkoti í Bárðardal þriðjudaginn 13. október. Þar verður fjallað um sjálfbærni í landbúnaði, helstu tækifæri og áskoranir og hvernig laga má búrekstur að aðstæðum hvers bús með sjálfbærri nýtingu staðbundinna náttúruauðlinda.
Vinnustofan hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 15:00. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar í byrjun og lok fundar.
Vinnustofan er hluti af starfi Loftslagsvæns landbúnaðar þar sem lögð er áhersla á fræðslu, ráðgjöf og jafningjafræðslu milli bænda. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem þátttakendur geta miðlað reynslu, rætt raunhæfar aðgerðir og skoðað hvernig sjálfbærari búskaparhættir geta stuðlað að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, betri nýtingu aðfanga, auknu jarðvegsheilbrigði, minni losun gróðurhúsalofttegunda og hagrænum ávinningi í búrekstri.
Svartárkot er innsti bær í Bárðardal og stendur í um 400 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar er rekið sauðfjárbú og ferðaþjónusta. Á vinnustofunni verður rætt um hvaða tækifæri og áskoranir eru í jaðarbyggðum og hvernig nýta má staðbundnar náttúruauðlindir til að styðja við sjálfbærni á þessum svæðum.
Meðal þess sem verður til umfjöllunar á vinnustofunni:
- Tækifæri og áskoranir á bújörðum sem staðsettar eru á jaðarsvæðum.
- Hlunnindi á bújörðum og sjálfbær nýting staðbundinna náttúruauðlinda.
- Gróðurhús fyrir köld svæði.
- Landgræðsla og endurheimt vistkerfa.
- Túnrækt og skógrækt við krefjandi aðstæður.
- Reynsla bænda af því að prófa nýjar leiðir og laga þær að aðstæðum hvers staðar.
Vinnustofan er opin öllum bændum, óháð búgrein, sem og öðrum sem hafa áhuga á landbúnaði, sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og loftslagsvænni nálgun í búrekstri. Hún er tilvalinn vettvangur til að fá nýjar hugmyndir, spyrja spurninga, ræða hagnýtar lausnir og hitta aðra sem vilja efla sjálfbærni í íslenskum landbúnaði.
Starfsfólk RML og Lands og skógar mun taka þátt í umræðum, koma með innlegg eftir þörfum og styðja við samtal þátttakenda. Áhersla verður lögð á að samtalið fari fram á hagnýtum nótum og að þátttakendur geti tengt umræðuna við eigin búrekstur, landnýtingu og framtíðaráform.
Skráning fer fram í gegnum tengil hér neðst á síðunni. Bændur og aðrir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig og nýta tækifærið til að taka þátt í samtali um sjálfbærni, loftslagsvænar aðgerðir og framtíð íslensks landbúnaðar.
Sjá nánar:
Skráning á vinnustofu
/okg