Verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður býður bændum upp á þátttöku í vinnustofum í haust. Þar verður áhersla lögð á að miðla þekkingu um hvernig bændur geta bætt búrekstur sinn til að ná fram loftslagsvænum og hagrænum ávinningi. Loftslagsvænn landbúnaður hefur staðið að vinnustofum sem þessum undanfarin ár fyrir þátttakendur í verkefninu. Þær hafa verið vel sóttar og verið mikilvægur liður í miðlun þekkingar milli bænda. Að þessu sinni verða vinnustofurnar opnar öllum bændum og eru þátttakendur í Loftslagsvænum landbúnaði sem og aðrir bændur hvattir til að skrá sig til þátttöku.
Markmiðið með vinnustofunum er að gefa bændum tækifæri á samtali og jafningjafræðslu um leiðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, bæta nýtingu aðfanga og styrkja sjálfbærni í rekstri búa. Vinnustofurnar verða haldnar á búum þar sem verið er að ná fram loftslagsvænum ávinningi með raunhæfum aðgerðum og við fjölbreyttar aðstæður. Þar fá bændur tækifæri til taka samtal í raunaðstæðum, miðla þekkingu sín á milli og spegla bú sín í sambærilegum aðstæðum. Á vinnustofunum er reynt að draga fram sérkenni hvers bús, ræða hvaða lausnir hafa reynst vel og skoða tækifæri til úrbóta, t.d. við jarðrækt, fóðuröflun, nýtingu búfjáráburðar, markvissari bústjórn o.fl.
Á vinnustofunum verður lögð áhersla á að bændur miðli reynslu sín á milli. Starfsfólk RML og Lands og skógar mun jafnframt taka þátt í umræðum, koma með innlegg eftir þörfum og svara spurningum þátttakenda. Vinnustofurnar henta öllum bændum. Þar má fá nýjar hugmyndir, ræða hagnýtar lausnir og tengja loftslagsaðgerðir við hagrænan ávinning í búrekstri.
Vinnustofur sem nú eru í boði verða haldnar:
- 21. september í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, þar verður aðal viðfangsefni og umræða um lífrænan landbúnað.
- 13. október í Svartárkoti í Bárðardal, þar verður aðal viðfangsefni og umræðuefni um sjálfbærni í landbúnaði.
Nánari upplýsingar um dagskrá verður send út fyrir hverja vinnustofu fyrir sig.
Bændur eru hvattir til að taka þátt, spyrja spurninga og nýta tækifærið til að hitta aðra bændur sem vinna að loftslagsvænni og hagkvæmari búskap.
Skráning fer fram á vef RML í gegnum skráningarhnap á forsíðu vefsins.
Sjá nánar:
Vinnustofur Loftslagsvæns landbúnaðar - Skráningar
/okg