Mælaborð í Jörð.is

Í nýjustu útgáfu af Jörð.is er búið að bæta við „mælaborði“ þar sem bændur geta fylgst með stöðu skráninga á sínu búi, bæði með tölulegum upplýsingum og með myndrænni framsetningu á korti. Einnig er komin ný frétta- og tilkynningasíða í mælaborðið þar sem meðal annars koma fram upplýsingar um skiladaga skýrsluhaldsins.

Sem dæmi er núna hægt að skoða á korti á hvaða tún búið er að skrá áburðargjafir, kölkun, ræktun og uppskeru. Þá er hægt að sjá á litakvarða hversu langt er síðan túnin voru síðast endurræktuð og upplýsingar um uppsöfnun búfjáráburðar.

Stefnt er að því að halda áfram þróun mælaborðsins með það að markmiði að bændur fái betri yfirsýn yfir skýrsluhaldsgögnin svo þau nýtist sem best við ákvarðanatökur í jarðræktinni.

/okg