Mikil eftirspurn á kynbótasýningar - 150 plássum bætt við

Afar mikil og verðmæt eftirspurn er eftir plássum á kynbótasýningar vorsins og var um metskráningu að ræða þegar opnað var á skráningar þriðjudaginn síðasta. Búist var við aukningu þetta vorið og um 300 plássum bætt við miðað við síðasta landsmótsvor en þátttakan fór fram úr okkar björtustu vonum. Staðan er núna sú að ekkert laust pláss er á kynbótasýningar sunnanlands frá 26. maí til 24. júní. Vegna þessa verður sýningu bætt við í Víðidal dagana 22. til 24. júní og bætast þar við 60 pláss. Þá verður einnig dæmt þann 17. júní á sýningunum á Rangárbökkum og í Víðidal. Mótanefnd Geysis hefur einnig opnað á að dæma föstudaginn 12. júní og er því hægt að bæta við 30 plássum í vikunni 8. til 12. júní. Með þessu bætast þá við 90 pláss. Samtals verður því bætt við 150 plássum sem vonandi ná að anna þeirri eftirspurn sem eftir er. Opnað verður á skráningar á þessar sýningar klukkan 09:00 þriðjudaginn 12. maí.

Ljóst er að afar spennandi sýningarvor er fram undan í aðdraganda Landsmóts á Hólum og væntum við hjá RML góðs samstarfs við sýnendur og eigendur kynbótahrossa; nú sem endranær. Miklar framfarir hafa verið á síðastliðnum árum í íslenskri hrossarækt sem endurspeglar mikinn metnað og áhuga hjá fjölda hrossaræktenda og sem sést nú á þeirri miklu þátttöku sem verður á sýningum vorsins. Staðan er verðmæt og vegurinn bjartur fram undan.

/okg