Síðustu ár hefur dregið verulega úr því að bændur taki jarðvegssýni til að kanna næringarástand jarðvegsins og aðstæður til vaxtar og fyrir vikið byggja menn áburðaráætlanir sínar oft á veikum grunni. Mikilvægt er að snúa þessari þróun við og efla á ný þennan mikilvæga þátt í bústjórninni. Mælt er með því að bændur láti taka jarðvegssýni úr túnum á u.þ.b. 5 ára fresti. Þannig má fylgjast með þróun í forða á helstu næringarefnum. Í þeim tilfellum þar sem grunur leikur á að næringarástandi jarðvegs sé ábótavant skal sérstaklega huga að þessum þætti og forgangsraða sýnatökunni með tilliti til þess.
Ráðunautar RML eru þessa dagana að skipuleggja sýnatökuna sem framkvæmd er á haustin. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að taka sýni dýpra en áður til að auka á áreiðanleika niðurstaðnanna. Boðið er upp á að bændur sæki rafrænt um sýnatöku hér í gegnum heimasíðuna á þar til gerðu eyðublaði, en að sjálfsögðu er einnig tekið við slíkum þjónustubeiðnum sem og öðrum í síma (516-5000).
Upplýsingar um gjaldtöku RML má sjá á heimasíðunni en efnagreiningarkostnaður hjá LbhÍ er 4.013 kr/án vsk fyrir hvert sýni.
Þess má geta að hjá RML eru í boði ýmsar pakkalausnir og þar á meðal jarðræktarpakki sem ber heitið Sprotinn. Markmiðið með þeirri lausn er að veita bændum markvissa ráðgjöf í nýtingu áburðar ásamt því að veita ákveðna grunnþjónustu í jarðræktarskýrsluhaldi. Einn liðurinn þar er jarðvegssýnataka og túlkun á niðurstöðunum.
Sjá nánar:
Panta hey-/jarðvegssýnatöku
Upplýsingar um ráðgjafarpakkann SPROTANN
bpb/okg