Mikilvægt að tilkynna bógkreppu eða aðra hugsanlega erfðagalla

Ef lömb fæðast sem bera hugsanlega einkenni bógkreppu er áfram mikill akkur í því að fá úr þeim DNA sýni. Enn er í þróun erfðapróf fyrir bógkreppu og mikilvægur liður í að bæta það próf er að fá sýni úr lömbum sem örugglega bera þennan erfðagalla.

Hvað á að gera ef fæðist vanskapað lamb og grunur er um að það sé vegna bógkreppu?
Yfirleitt drepast þessi lömb í burði. Engu að síður er best að gefa þeim lambanúmer og taka úr þeim DNA sýni. Nota má sömu hylki og notuð eru vegna riðuarfgerðargreininga. DNA sýnið er skráð undir „aðrar arfgerðargreiningar“ og Matís skráð sem greiningaraðili.

Í þessum tilfellum er gott að hafa samband við Eyþór hjá RML (ee@rml.is eða 862-6627) og láta vita af lambinu. Það væri mjög gott að fá skrokka af nokkrum bógkreppulömbum til að senda að Keldur til skoðunar. Í lagi er að frysta hræið.

DNA sýnin er best að senda á:
RML
Bt. Eyþór Einarsson
Borgarsíðu 8
550 Sauðárkróki

Í öllum tilfellum væri mikilvægt að taka myndir af lambinu sem sýna vel einkennin.

Greining á sýninu og skoðun á hræjum er bændum að kostnaðarlausu.

Hvað er bógkreppa?
Aðaleinkenni bógkreppu eru stuttir og krepptir framfætur sem ekki er hægt að rétta úr. Snúningar í framfótum geta verið mismiklir en yfirleitt eru framfætur það krepptir að þó lambið lifi, gengur það á hnjánum. Bitgallar fylgja ekki klassískri bógkreppu, en skyld vansköpun er þekkt, sem kallast transeiði (neðri skoltur lengri en efri skoltur) og snúnir fætur. Sýni og upplýsingar um lömb með þá vansköpun er einnig mikilvægt að fá.

Um bógkreppuprófið
Enn er ekki farið að bjóða upp á þjónustugreiningar fyrir bógkreppu. RML mun þó í samstarfi við Matís senda sýni til Nýja-Sjálands til greiningar. Það er því óhætt að senda sýni úr gripum sem áhugi er fyrir að láta prófa. Verð liggur ekki fyrir en áætlað að það geti verið um 4.000 kr pr sýni.

Almennt um vansköpun
Þó ekki sé algengt að vansköpuð lömb fæðist er afar mikilvægt að halda utan um slíkar upplýsingar til að hægt sé að sporna við útbreiðslu erfðagalla. Sérstaklega er þetta mikilvægt þegar um afkvæmi sæðingastöðvahrútanna er að ræða. Aðrir gallar sem má sérstaklega nefna og gott er að vita af eru klofinn hryggur (opin rauf ofan í mænugöng aftarlega á hryggnum og lambið lamað í afturparti) og naflaslit.

/okg