Ástrós 025 á Brúnastöðum í Flóa. Mynd: Ágúst Ingi Ketilsson.
Það er ávallt gaman að segja frá því sem fram úr skarar og er allrar athygli vert. Við uppgjör skýrsluhaldsins fyrir árið 2025 kom í ljós að afurðahæsta kýrin í Nautgriparæktarfélagi Hraungerðishrepps og Ölfuss var kýr sem var að mjólka á sínu fyrsta mjólkurskeiði. Það er svo sem ef til vill ekkert einsdæmi en það sem er öllu athyglisverðara er afkastageta þessa grips sem um ræðir. Ástrós 025 á Brúnastöðum í Flóa mjólkaði á síðasta ári 12.907 kg mjólkur með 3,90% fitu og 3,47% próteini. Hún bar 25. nóvember 2024 og örðum kálfi 25. mars 2026. Mjólkurskeiðsafurðirnar urðu því 14.410 kg. Hæsta skráða dagsnyt hjá henni á 1. mjólkurskeiði var 42,8 kg í janúar 2025 og hún var í 40 kg dagsnyt í lok apríl á síðasta ári. Dagsnytin fór ekki niður fyrir 30 kg fyrr en við lok október s.l.
Þessi afburðagripur er undan heimanautinu Skjálfta 1662281-1354 sem var undan Bjarka 15011 frá Akri í Eyjafirði og Lúðu 990 á Brúnastöðum en hún var Klettsdóttir 08030. Undan henni var tekið naut á stöð, Fengur, en hann gaf því miður ekki sæði. Móðir Ástrósar er Syneta 1333 undan Styrk 18018 en hann var Úllasonur frá Hnjúki í Vatnsdal.
Það er full ástæða til að óska þeim Elínu og Ágústi á Brúnastöðum til hamingju með þennan afburðagrip sem Ástrós er.