Móttaka pantana á lambadómum er hafin

Móttaka á pöntunum á lambadómum er nú hafin. Best er að bændur panti sjálfir í gegnum heimasíðu RML (sjá tengil á forsíðu) en einnig er hægt að hringja í 516-5000 og láta taka pöntunina niður.

Eindregið er óskað eftir því að bændur panti fyrir 15. ágúst svo skipuleggja megi þessa vinnu með sem hagkvæmustum hætti. Ef ekki liggur fyrir í hvaða viku á að skoða lömbin þegar nálgast miðjan ágúst er vakin athygli á því að nú er hægt að panta lambaskoðun hér á heimasíðunni án þess að panta ákveðna viku. Þeir bændur og skipuleggjendur verða þá í samráði með tímasetningu í framhaldinu og skoða hvaða möguleikar eru eftir í stöðunni.

Pantanir sem berast fyrir 15. ágúst njóta forgangs við niðurröðun og þeir sem panta síðar geta lent í verri stöðu með að fá lambaskoðun á þeim tíma sem þeir óska helst eftir. Síðasti dagur sem hægt er að panta vinnu við lambadóma er föstudagurinn 16. október. Semja þarf sérstaklega við skipuleggjendur lambadóma á hverju svæði um vinnu sem óhjákvæmilegt er að hafa utan tímabilsins 7. september til 16. október. Mikilvægt að fá þær óskir eins tímalega og kostur er.

Nánar verður sagt frá fyrirkomulagi lambadóma á komandi hausti í Bændablaðinu sem kemur út 16. júlí.

Sjá nánar
Panta lambadóma

ább/okg