Námskeið í Jörð.is

Námskeiðið er einkum ætlað bændum, en er þó öðrum opið. Hámark þátttakanda er 12 og fer kennslan fram í tölvustofum þar sem því er viðkomið annars mæta þátttakendur með eigin fartölvur og fá aðgang að þráðlausu neti.

Kennt verður á skýrsluhalds- og jarðræktarforritið Jörð.is. Farið verður yfir helstu þætti þess hvernig bændur geta nýtt sér vefforritið til að halda utan um jarðræktarsögu búsins, útbúa áburðaráætlanir og nýta við verðsamanburð á milli áburðarsala. Í forritinu geta bændur t.a.m. gert vandaðar áburðaráætlanir sem byggðar eru á áburðarþörf hvers bús en jafnframt bætt inn eigin skilyrðum, með þessu ættu bændur að ná fram hámarks hagkvæmni.

Kennarar: Borgar Páll Bragason og Sigurður Jarlsson ráðunautar hjá RML.

Námskeiðin verða haldin sem hér segir: 

  • Fim. 31. mars, kl. 10:00-17:00 á Hvanneyri - kennt í tölvustofu
  • Mán. 4. apríl, kl. 10:00-17:00 á Hvolsvelli.
  • Þri. 5. apríl, kl. 10:00-17:00 á Höfn í Hornafirði
  • Mið. 6. apríl, kl. 10:00-17:00 á Suðausturlandi (nákvæm staðsetning ákvarðast út frá skráningum)
  • Fim. 7. apríl, kl. 10:00-17:00 á Norðausturlandi (nákvæm staðsetning ákvarðast út frá skráningum)
  • Fös. 8. apríl, kl. 10:00-17:00 á Þórshöfn (þátttakendur mæta með eigin tölvur með sér)
  • Lau. 9. apríl, kl. 10:00-17:00 á Akureyri (þátttakendur mæta með eigin tölvur með sér)

Skráning fer fram í gegnum Endurmenntunardeild LbhÍ.

Verð: 19.900 kr.

Sjá nánar: 

Skráning á námskeið

Minnum bændur sérstaklega á Starfsmenntasjóð bænda.