Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum ágúst

Kopar 17014 frá Stóru-Tjörnum í Þingeyjarsveit
Kopar 17014 frá Stóru-Tjörnum í Þingeyjarsveit

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni nú í ágúst hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til nálægt hádegi þann 11. september, höfðu skýrslur borist frá 520 búum. Reiknuð meðalnyt 24.562,1 árskýr á þessum búum, var 6.351 kg á síðustu 12 mánuðum og reiknaðist 8 kg. hærri en við lok júlí. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 47,2. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við höfum séð nokkuð lengi undanfarið, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar mjólkaði nú að jafnaði 8.885 kg. Annað búið í röðinni var einnig hið sama og verið hefur undanfarið, bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalkýrin skilaði 8.739 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja í röðinni nú, hið sama og seinast var bú Gunnbjarnar ehf. í Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Á því búi reiknaðist meðalnyt árskúa 8.624 kg. á umræddu tímabili. Í fjórða sæti á listanum að þessu sinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit en meðalnyt árskúnna þar reyndist nú 8.366 kg. Fimmta búið við uppgjörið nú eins og fyrir mánuði var Hvanneyrarbúið í Andakíl, en þar mjólkaði meðalárskýrin nú 8.340 kg.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Svana 753 (F. Gráni 606, sonarsonur Lóa 01008 og dóttursonur Ófeigs 02016) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð en nyt Svönu reyndist 14.043 kg. síðastliðna 12 mánuði. Önnur kýrin að þessu sinni var Korna 150 (f. Hræsingur 98046) á Brúsastöðum í Vatnsdal en hún skilaði 13.568 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja kýrin í röðinni nú var Vakt 835 (f. Hegri 03014) í Reykjahlíð á Skeiðum sem mjólkaði 13.553 kg. á tímabilinu.

Alls náðu 110 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir ágúst hafði verið skilað frá nálægt hádegi þ. 11. september, að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 31 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og af þeim náðu fjórar hærri nyt en 13.000 kg. síðustu 12 mánuðina. Ein þeirra mjólkaði yfir 14.000 kg. eins og fram kom hér á undan. 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk