Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum febrúar

Tyrfill frá Torfum í Eyjafjarðarsveit
Tyrfill frá Torfum í Eyjafjarðarsveit

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í febrúar hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til rétt fyrir hádegi þann 12. mars, höfðu skýrslur borist frá 553 búum. Reiknuð meðalnyt 25.451,1 árskýr á þessum búum, var 6.241 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 46,0. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum er aldeilis ekki nýtt í efsta sæti þessa lista, hið sama og við höfum séð við mörg uppgjör undanfarið, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar mjólkaði síðustu 12 mánuði 8.853 kg. að jafnaði. Annað búið í röðinni er einnig kunnuglegt, bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalkýrin mjólkaði 8.433 kg. á tímabilinu. Þriðja búið á listanum er einnig sama og fyrir mánuði, bú Gunnbjarnar ehf. í Skáldabúðum í hinum gamla Gnúpverjahreppi en þar reiknaðist meðalnyt árskúa 8.390 kg. Hið fjórða á listanum nú var Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl í Borgarfirði, þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 8.230 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fimmta búið að þessu sinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi en meðalnyt árskúnna þar var 8.229 kg. á tímabilinu.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Sjöa 777 (f. Roði 11051) á Kúskerpi í Blönduhlíð í Skagafirði sem mjólkaði 14.838 kg undanfarna 12 mánuði. Önnur var Nína 676 (f. Ófeigur 02016) á Brúsastöðum í Vatnsdal en nyt hennar reyndist 13.339 kg á tímabilinu. Þriðja kýrin var Fura 1524 (f. Þvali 10008) á Hvanneyri í Andakíl en nyt hennar reiknaðist 13.191 kg á tímabilinu.

Alls náðu 86 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir janúar hafði verið skilað frá skömmu fyrir hádegið þ. 12. mars, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 13 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og þar af fjórar sem komust yfir 13.000 kg og ein þeirra síðastnefndu mjólkaði meira en 14.000 kg síðustu 12 mánuðina.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk