Niðurstöður lambdóma og sláturupplýsingar – 1. nóvember síðasti skráningardagur

Í undirbúningi er ný hrútaskrá. Til að fá sem besta mynd af stöðu allra hrúta er mikilvægt að nýta tiltæk gögn úr lambadómum og kjötmati. Í skránni verða birt að vanda meðaltöl dóma hjá afkvæmum allra stöðvahrúta og fylgir hrútunum spánýtt kynbótamat. Það er því mikill akkur í því að allir fyrirliggjandi dómar og sláturgögn séu færð inn og staðfest inn í Fjárvís. Jafnframt hafa bændur beinan hag af því að fá sem sannast mat á heimahrútana nú þegar sláturtíð er að enda og lambdómum lokið.

Stefnt er að því að taka út gögn vegna útreikninga á kynbótamati næstkomandi mánudag og jafnframt taka út þau dómagögn sem birta á í hrútaskrá. Bændur eru því hvattir til þess klára skráningu á lambadómum og staðfesta allar sláturupplýsingar í Fjárvís í síðasta lagi sunndudaginn 1. nóvember.

/okg