Pjakkur frá Miðdal í Kjós, sonur Snáða 23017 og Froðu 728, dóttur Púða 20025. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar janúarmánuður er þegar liðinn hjá, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað að morgni þann 12. febrúar. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem tengill er í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 432 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær að þessu sinni til 113 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.570,1 árskýr á búunum 432 var 6.669 kg. eða 6.938 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, febrúar 2025 til janúar 2026. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 432 búum reiknaðist nú 56,9.
Mest meðalnyt árskúa að þessu sinni var á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem 31,7 árskýr mjólkuðu að jafnaði 8.733 kg. á síðustu 12 mánuðum. Næst á eftir var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem 77,8 árskýr mjólkuðu 8.674 kg. á uppgjörstímabilinu. Þriðja var bú Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi en þar voru meðalafurðir 42,8 árskúa 8.525 kg. á síðustu 12 mánuðum.
Hér má enn nefna að við höfum leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta nærri því ár, en á það viðmið reynir sjaldan því ný bú eru sjaldséð á listanum.
Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem liðið er af þessu ári á Branda (f. Sjóli 18006) í Stóru-Mörk 1 en hún mjólkaði samtals 14.717 kg. á tímabilinu febrúar 2025 til janúar 2026. Önnur í röðinni að þessu sinni er Húma 759 (f. Hrímnir 693, sonur Silfra 631 sem var sonarsonur Kambs 06022 og dóttursonur Silfra 09004. Móðurfaðir Húmu er Gýmir 11007) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, en upprunnin í Skollagróf í sömu sveit, sem náði 14.657 kg. 12 mánaða nyt nú við lok janúar. Þriðja að þessu sinni var Vetrarsól 2816 (f. Risi 15014) í Skáldabúðum 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en 12 mánaða nyt hennar reiknaðist 14.520 kg.
Nú við lok janúar hafa 18 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Sex þeirra hafa náð nyt yfir 14.000 kg. á tímabilinu.
Meðalfjöldi kúa á þeim 113 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 29,3 við lok janúar en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 26,9 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.152,5 kg. á umræddum 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.227 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur bárust frá, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 261,0 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 737,2 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reiknaðist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar uxu 35 gripir að meðaltali 714 g. á 485 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali 674 g. á 540 dögum. Þriðja á listanum nú var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 534 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 644 g. á dag.
Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 35 gripir vigtuðu að meðaltali 379,0 kg. eftir 812 vaxtardaga. Næstmestur var meðalfallþunginn á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, 377,2 kg. á 26 gripum, eftir 540 vaxtardaga. Þriðja búið í röðinni hér reyndist vera á Ytra Hólmi I þar sem fallþungi 12 gripa var að jafnaði 370,7 kg. eftir 726 vaxtardaga.
Sjá nánar hér.