Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn júní

Siffi frá Bryðjuholti í Hrunamannahreppi, undan Tanna 15065 og Bryðju 853.
Siffi frá Bryðjuholti í Hrunamannahreppi, undan Tanna 15065 og Bryðju 853.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuði, við lok nýliðins júnímánaðar, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað skömmu fyrir hádegi þann 12. júlí.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 447 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 126 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 23.843,5 árskúa á fyrrnefndum 447 búum var 6.408 kg. eða 6.295 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 53,3.

Mest meðalnyt árskúa á uppgjörstímabilinu, síðustu 12 mánuðum, reyndist vera á Merkurbúinu í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum en þar mjólkaði árskýrin að jafnaði 8.967 kg. Næst í röðinni var bú Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi, þar sem nytin reyndist 8.900 kg. eftir árskú að meðaltali. Þriðja að þessu sinni var bú Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi en þar mjólkaði árskýrin að jafnaði 8.481 kg. Fjórða í röðinni var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem hver árskýr mjólkaði 8.432 kg. Fimmta var bú Guðrúnar og Óskars á Tannstaðabakka við Hrútafjörð þar sem meðalnyt árskúnna var 8.426 kg. á umræddu tímabili. Þess má geta að þessi röð er óbreytt frá því fyrir mánuði síðan.

Nythæsta kýrin á undanförnu 12 mánaða tímabili var Bára 523 (f. Sandur 07014) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði á tímabilinu 14.059 kg. Önnur í röðinni að þessu sinni var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 14.008 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja kýrin nú var Sabína 2 nr. 1401 (f. Keipur 07054) í Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en nyt hennar reyndist vera 13.576 kg. á umræddu 12 mánaða tímabili. Fjórða í röðinni var Kvika 650 (f. Kraftur 12024) á Hæli 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mjólkaði á tímabilinu 13.028 kg. Fimmta það þessu sinni var Bjartsýn 1068 (f. Fossdal 10040) í Efra-Ási í Hjaltadal í Skagafirði sem skilaði 12.961 kg. mjólkur.

Alls náðu 140 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir júní hafði verið skilað frá nærri hádegi hinn 12. júlí, að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuði. Af þeim skiluðu 33 nyt yfir 12.000 kg. og þar af mjólkuðu fjórar yfir 13.000. Tvær þeirra mjólkuðu meira en 14.000 kg. á tímabilinu sem um ræðir, eins og fram hefur komið hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á þeim 126 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 27,4 nú við lok júní en árskýrnar á þeim búum voru að jafnaði 25,8. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum reyndist 6.833,8 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.804 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, undanfarna 12 mánuði, var 253,2 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 745,6 dagar.

 

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2023